Forvarnargildi íþrótta
Íþróttahreyfingin gegnir mikilvægu hlutverki í vímuvörnum. Rannsóknir á högum barna og ungmenna sýna að þeim ungmennum reiðir betur af og neyta síður vímuefna sem eru virk í íþróttastarfi. Einnig sýna rannsóknir að neysla vímuefna og tóbaks hafa skaðleg áhrif á árangur í íþróttum. Knattspyrnudeild Hauka vill efla enn frekar vímuvarnargildi íþrótta með því að taka skýra afstöðu gegn neyslu í tengslum við íþróttir. Í þessari stefnuyfirlýsingu er tala um vímuefnaneyslu og er átt við neyslu áfengis og annarra vímuefna.
Neysla tóbaks og vímuefna: Félagið er andvígt allri neyslu tóbaks og vímuefna allra iðkenda og annarra félagsmanna sem koma að íþróttastarfi á vegum aðildarfélaga. Öll neysla tóbaks og vímuefna er bönnuð í tengslum við æfingar og keppni á vegum íþróttafélaga.
Viðbrögð félagsins við tóbaks- og vímuefnaneyslu iðkenda: Knattspyrnufélagið Haukar hvetur þjálfara og stjórnar- og félagsmenn til að bregðast sérstaklega við allri vímuefnaneyslu iðkenda undir 18 ára aldri og foreldrar verða undantekningarlaust upplýstir um slíka neyslu. Við vímuefna- og tóbaksneyslu þeirra sem eru sjálfráða eiga félög að bregðast við neyslu sem er brot á reglum félagsins. Neyslan hefur neiðkvæð áhrif á ástundun iðkenda, frammistöðu þeirra og ímynd félagsins. Viðbrögð Hauka við brotum á reglum þessum eiga að vera í formi tilmæla og ábendinga. Skili slík viðbrögð ekki árangri getur komið til tímabundins banns frá æfingum og/eða keppni. Viðbrögð Hauka munu samt ávallt mótast af vilja til að aðstoða iðkandann við að laga sig að reglum þannig að hann ahaldi áfram að starfa innan íþróttahreyfingarinnar.
Hlutverk þjálfara: Þjálfarar skulu vinna eftir vímuvarnastefnu félagsins, þar með talið að bregðast við vímuefnaneyslu iðkenda á viðeigandi hátt. Knattspyrnudeild Hauka í samvinnu við félagið og íþróttabandalagið mun sjá þjálfurum fyrir fræðslu um áhrif vímuefnaneyslu á árangur í íþróttum sem þjálfarar síðan miðla áfram til iðkenda. Þjálfarar skulu framfylgja stefnu Hauka varðandi samstarf við foreldra og aðra aðila sem sinna málefnum barna og unglinga.
Samstarf við foreldra: Knattspyrnufélagið Haukar hvetur stjórnendur flokka og þjálfara til að upplýsa foreldra um stefnu félagsins í vímuvörnum. Þjálfarar eru hvattir til að standa að góðu samstarfi við foreldra iðkenda með fræðslu um neiðkvæð áhrif áfengis og annarra vímuefna á árangur í íþróttum. Þá eru leiðtogar í félaginu hvattir til að efla fræðslu til foreldra um þjálfun og æskilegt mataræði íþróttafólks. Stjórnendur deilda og þjálfarar eru hvattir til að starfa náið með fagfólki í vímuvörnum og hafa samráð við foreldra, þurfi að taka á neysluvandamáli iðkanda undir sjálfræðisaldri.
Samstarf við aðra aðila sem sinna málefnum barna og unglinga: Félagið hvetur stjórnendur flokka og þjálfara til að hafa náið samstarf við þá aðila sem sinna tómstundarstarfi barna og unglinga á vegum sveitarfélagsins og hafa náið samstarf við fagaðila sem sinna börnum og unglingum, fá frá þeim fræðsluefni og hafa samráð um einstaklinga í áhættuhópi.