Haukar.is
Félagið mitt

 
  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Forsíða Körfuknattleiksdeild Haukafólk á erlendri grundu

Haukafólk á erlendri grundu

Deila á Facebook Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Í vetur verða nokkrir Haukamenn að leika með erlendum félagsliðum og ætlar heimasíðan að reyna fylgjast með þeim og flytja fréttir af þeim.

Þau Helena Sverrisdóttir, Elvar Traustason og Sigurður Einarsson leika erlendis í vetur. Helena í Bandaríkjunum með háskólanum TCU, Elvar Traustason með ABF sem er varalið danska úrvalsdeildarliðsins Bakken Bears og Sigurður Einarsson leikur með Horsens í dönsku 2. deildinni.

Sigurður Einarsson lék einmitt um helgina og var stigahæstur sinna manna í sigri á Lundegaard í dönsku 2. deildinni. Hann skoraði 28 stig en hans menn fóru með sigur 94-90.

Heimasíðan mun flytja fleiri fréttir í vetur af gengi okkar fólks.

Mynd: Sigurður Einarsson og Halldór Karlsson liðsfélagi hans hjá Horsens í Danmörku - Horsens BC

 
Borði
Borði


Molar

Á félagsfundi í Haukum i ársbyrjun 1932 var samþykkt að félagið óskaði eftir aðild að ÍSI.  Félagið var skömmu síðar samþykkt sem fullgildur aðili að ÍSÍ.  (Heimild: Haukar í 60 ár, bls. 7)