Mottumars – Styrktarhlaup Hauka

HaukarLaugardaginn 22. mars verður sérstakt styrktarhlaup á vegum skokkhóps Hauka.

Aðgangseyrir kl. 1.000,- eða frjáls framlög.

Allir hlaupafélagar, vinir, ættingjar og aðrir sem vilja kynna sér Skokkhóp Hauka og vera með í þessu frábæra framtaki, mæti á æfingu kl. 9:00 á Ásvöllum

Fólk er beðið um að mæta skreytt mottum, bindum, slaufum eða öðru skemmtilegu. Fjölmiðlar mæta á staðinn og tekin verður hópmynd.

 

Æfingin fer svo fram eins og vant er en öllum er frjálst að ganga, hjóla o.s.frv. Að æfingu lokinni er frít í Ásvallalaug.

 

Eftir sund kl. 13:00 verða léttar veitingar í boði á Ásvöllum. Um kvöldið er ætlunin að hópurinn hittist á All In sportbar.