Oddaleikur í Schenkerhöllinni, Haukar – Keflavík. – Skyldumæting.

Það þarf oddaleik til að ná fram úrslitum í viðureign Hauka og Keflvíkinga í 8 liða úrslitum Dominos deildar karla og verður viðureignin háð í Schenkerhöllinni miðvikudaginn 28. mars kl. 19:15.

Deildarmeistarar Hauka unnu fyrstu tvo leikina en hafa tapað síðustu tveim í ansi jöfnum viðureignum þar sem úrslitin hafa ráðist á síðustu sekúndum leiksins. Baráttan hefur verið gríðarlega og hefur viðureign þessa tveggja liða verið mjög skemmtileg.

Við hvetjum alla Hafnfirðinga til að mæta í Schenkerhöllina og hjálpa liðinu að komast áfram í undanúrslit.

Búum til frábæra stemningu, mætum snemma og fáum okkur börger og hitum upp raddböndin.

Áfram Haukar