Meistaraflokkur karla leikur enn einn æfingaleikinn annað kvöld, nánar tiltekið klukkan 18. Leikurinn verður spilaður í Kórnum og spila strákarnir við Breiðablik.
Þetta er þriðji æfingaleikur liðsins á 10 dögum. Liðið hefur litið vel út eftir því sem líður á og voru grannar okkar í FH stálheppnir að ná jafntefli við liðið á laugardaginn en sá leikur endaði 2-2.
Hilmar Geir Eiðsson og Hilmar Emilsson skoruðu mörk Hauka í leiknum en Arnar Gunnlaugsson komst ekki á blað í þeim leik en hann hefur verið iðinn við kolann nú á undirbúningstímabilinu.
Flest allir lykilmenn liðsins eru heilir en Guðjón Lýðsson er eins og flestir vita út í Danmörku þar sem hann æfir með Brabrand. Úlfar Pálsson, Jónmundur Grétarsson og Enok Eiðsson eru allir tæpir en annars eru allir heilir.
Við hvetjum alla til að mæta og horfa á strákana gegn bikarmeisturunum í Breiðablik. Áfram Haukar!