Íris í byrjunarliði Stjörnuliðsins

Íris Sverrisdóttir var valin af lesendum KKÍ.is í byrjunarliðiðÍris Sverrisdóttir, bakvörður mfl. kvenna, verður í byrjunarliði lið Reykjaness í Stjörnuleik KKÍ. Ásamt henni eru þær Pálína Gunnlaugsdóttir, Bryndís Guðmundsdóttir, Birna Valgarðsdóttir og Jacquline Adamshick í byrjunarliðinu en þær koma allar úr Keflavík.

Stjörnuleikur kvenna verður í Ásgarði í Garðabæ laugardaginn 15. janúar en þar mætast annars vegar lið Reykjanes og hins vegar lið Landsins.

Þjálfarið liðsins Jón Halldór Eðvaldsson mun svo velja sjö leikmenn til viðbótar.

Heimasíðan óskar Írisi til hamingju.

Sjá alla fréttina á vef KKÍ