Í kvöld tryggðu nágrannar okkar í FH sér Íslandsmeistaratitilinn í N1 deildinni í handbolta. Við óskum FH til hamingju með þennan árangur en FH varð seinast Íslandsmeistari í mfl. karla árið 1992. Eins og Haukamenn muna þá unnum við titilinn í fyrra og höfum unnið hann 8 sinnum síðan árið 2000. Enn er Hafnarfjörður að stimpla sig inn sem Handboltabær og rétt að reyna að gleðjast yfir því að bikarinn sé áfram í Firðinum þrátt fyrir að hann sé ekki á Ásvöllum í þetta skiptið.
Áfram Haukar!