Haukastelpur unnu öruggan sigur á botnliði Víkings í N1 deild kvenna í gærkvöldi. Haukar eru sem fyrr í fjórða sæti deildarinnar með 22 stig eftir sextán leiki. Næsti leikur stelpnanna er kl. 16 á laugardaginn þegar að þær sækja topplið Vals heim að Hlíðarenda. Þá er um að gera að styðja við bakið á stelpunum.