Úrslit mfl.kvenna

Stelpurnar spila við Stjörnuna í úrslitum og verður fyrsti leikur um næstu helgi. Þessi lið hafa marga hildi háð á undanförnum árum og ekki von á öðru en boðið verði uppá blóð, svita og tár. Einnig spennu og meiri spennu og ætti enginn að láta þessi leiki framhjá sér fara. Allavega er nokkuð ljóst að við Haukar ætlum að skemmta okkur og mætum í pallana og hvetjum okkar lið.

Leikirnir verða sem hér segir:
1. leikur – Laugardaginn 20. apríl kl. 16.00 á Ásvöllum
2. leikur – Mánudaginn 22. apríl kl. 20.15 í Stjörnuheimili
3. leikur – Fimmtudaginn 25. apríl kl. 14.00 á Ásvöllum (sumardagurinn fyrsti)
4. leikur – Laugardaginn 27. apríl. kl. 16.00 í Stjörnuheimili
5. leikur – Mánudaginn 29. apríl kl. 20.15 á Ásvöllum