Þrjú lið Hauka áttu möguleika að leika úrslitaleikinn um Íslandsmeistaratitilinn í sínum flokki um helgina. Unglingaflokkur karla, 9. flokkur kvenna og Stúlknaflokkur.
Ekkert liðanna tókst að tryggja sér sigur og því sæti í úrslitum.
Strákarnir í unglingaflokkir töpuðu stórt fyrir FSu á föstudagskvöld 112-71 eftir mjög jafnan fyrri hálfleik.
í 9. flokki kvenna mættu Haukar Keflavík og töpuðu 25-65.
Stúlknaflokkur lék svo við Keflavík og tapaði 44-40 í hörkuleik.
Þar með Íslandsmótinu lokið hjá okkar krökkum í ár.
Mynd: Kristinn Marinósson svífur í leiknum gegn FSu á föstudagskvöld – stefan@haukar.is