Þriðji sigurinn í röð hjá stelpunum í Olísdeildinni

Sólveig Björg lék stórvel í dag og lokaði markinu á köflumFrábær sigur hjá Haukastúlkum í dag þegar þær unnu KA/Þór í Schenkerhöllinni með 9 mörkum, 34 – 25. Í hálfleik var staðan 17-10 en mestur varð munurinn 15 mörk í stöðunni 30 – 15 þegar innan við 10 mínútur voru eftir af leiknum. Allir 12 útileikmenn liðsins komust á blað í dag og Sólveig átti stórleik í markinu.
Nú er mikilvægt að Haukamenn fjölmenni í Schenkerhöllina næsta þriðjudagskvöld og styðji stelpurnar til sigurs þegar þær mæta Fylki í 8-liða úrslitum Coca-Cola bikarsins.

 Áfram Haukar!