Stelpurnar í 10. flokki höfðu ekki erindi sem erfiði á laugardag en þær mættu Keflavík-b í undanúrslitum Íslandsmótsins í körfubolta.
Keflavík-b vann með 17 stigum 47-30 og spilar til úrslita í morgun gegn stöllum sínum í Keflavík-a.
Margrét Rósa Hálfdanardóttir skoraði 13 stig fyrir Hauka og Andrea Harðardóttir 6.
A-liðið vann þann leik 50-40 og eru Íslandsmeistarar.