Evrópuleikur í Ólafssal

Haukar mæta portúgalska liðinu Clube Uniao Sportiva í forkeppni FIBA EuroCup í körfuknattleik. Er þetta í þriðja sinn sem íslenskt félagslið fer í Evrópukeppni kvenna og er þetta einnig í þriðja sinn sem Haukar fara með kvennalið sitt í Evrópukeppnina. Leikurinn hefst kl. 19:30.

Nýkrýndir bikarmeistarar Hauka spila sinn fyrsta Evrópuleik í Ólafssal og vonandi ekki þann síðasta.

Miðasala er á Stubb appinu.

Áfram Haukar