Það er nóg um að vera hjá handboltanum næstu daga – Kvennaliðið á tvo útileiki og karlaliðið tvo heimaleiki!
Á morgun, laugardag kl. 16:00, leika stelpurnar gegn liði Stjörnunar í TM-Höllinni.
Mánudaginn, 15. nóv. fá strákarnir lið ÍBV í heimsókn á Ásvelli og hefst leikurinn kl. 18:00.
Þriðjudaginn 16. nóv. spila stelpurnar gegn liði HK og fer leikurinn fram í Kórnum kl. 19:30.
Fimmtudaginn 18. nóv. er sannkallaður stórleikur þegar mfl. karla fær lið Vals á Ásvelli. Leikurinn hefst kl. 19:30.
Við hvetjum Haukafólkið okkar til að mæta og styðja liðin til sigurs.
Áfram Haukar!