Strákarnir í 3.fl. tryggðu sér deildarmeistaratitilinn í gær með góðum sigri á FH. Strákarnir hafa spilað mjög vel í allan vetur og hafa þeir unnið 15 af 18 leikjum sínum í vetur. Það er ljóst að framtíðin er björt og það verður gaman að fylgjast með þessum strákum í úrslitakeppninni. Þessi kjarni mun spila í 1. deildinni á næsta tímabili og verður gaman að sjá strákana í þeirri baráttu.
Til hamingju strákar!