Þjálfarar U-21 árs liðs karla í handbolta, þeir Einar Guðmundsson og Einar Andri Einarsson hafa valið 18 manna æfingahóp sem mun leika þrjá vináttulandsleiki í desember. Leikirnir fara fram 18.-20. desember og eru allir gegn Noregi. Í hópnum eru þrír Haukamenn þeir Guðmundur Árni Ólafsson, Heimir Óli Heimisson og Stefán Rafn Sigurmannsson. Leikirnir eru liður í undirbúningi liðsins fyrir undankeppni HM sem fer fram í byrjun janúar og þar mætir Ísland liðum Eistlands, Makedóníu og Serbíu.
Íslenski hópurinn:
Markverðir:
Arnór Stefánsson – ÍR
Kristófer Guðmundsson – Afturelding
Sigurður Örn Arnarson – FH
Aðrir leikmenn:
Bjarki Már Elísson – HK
Geir Guðmundsson – Akureyri
Guðmundur Árni Ólafsson – Haukar
Guðmundur Hólmar Helgason – Akureyri
Halldór Guðjónsson – FH
Heimir Óli Heimisson – Haukar
Oddur Gretarsson – Akureyri
Ólafur Guðmundsson – FH
Ragnar Jóhannsson – Selfoss
Róbert Aron Hostert – Fram
Stefán Rafn Sigurmannsson – Haukar
Sverrir Eyjólfsson – Eisenach
Tandri Konráðsson – Stjarnan
Vignir Stefánsson – ÍBV
Þorgrímur Ólafsson – ÍR