Eldra árið í 5. flokki kvenna lék í sínu þriðja móti um helgina og hélt áfram á sigurbraut, unnu alla fjóra leiki sína.
Úrslitin voru þessi:
Haukar – ÍBV 25 – 7
Haukar – FH 18 – 5
Haukar – UMFA 27 – 3
Haukar – Grótta 25 – 13
Alls skoruðu þær 95 mörk en fengu ekki nema 28 á sig. Sóknarnýtingin var 79% og markavarslan rétt undir 60%. Þessar stelpur eiga sannarlega framtíðina fyrir sér í handbolta.
Markahæst um helgina var Alexandra Jóhannsdóttir en hún skoraði 36 mörk úr 40 skotum sem gerir 90% nýtingu sem er frábær árangur.
Sjá nánar upplýsingar um mótið á bloggsíðu flokksins.
Áfram Haukar!