4.flokkurinn leikur til úrslita á morgun

HaukarÁ morgun, sunnudag 18.apríl mun 4.flokkur Hauka keppa við Gróttu í úrslitaleik Íslandsmót karla.

Síðastliðinn þriðjudag kepptu Haukar við KA í 8-liða úrslitum og sigruðu þeir þann leik með fjórum mörkum, 34-30 í hörkuleik sem fram fór á Ásvöllum. Þeir mættu svo FH í undanúrslitunum og sýndu þeir þá hver er stóri bróðir í Hafnarfirðinum því þeir gjörsamlega fóru á kostum og rótburstuðu FH-ingana, 35-25.

 

Þeir mæta því eins og fyrri segir Gróttu á morgun og hefst leikurinn klukkan 15:30 í Austurbergi en Grótta sigraði Fram með einu marki í dag í framlengdum leik þar sem sigurmarkið kom úr aukakasti. Við hvetjum að sjálfsögðu alla Haukara til að fjölmenna í Austurberg og hvetja strákana til sigurs.