Á morgun, þriðjudag, mæta stelpurnar í meistaraflokki kvenna liði Fram í öðrum leik liðanna í undanúrslitum N1 deildarinnar. Leikurinn fer fram í Framhúsinu við Safamýri og hefst klukkan 19:30.
Fram vann fyrri leik liðanna á Ásvöllum á laugardaginn og verða því Haukastelpur að sigra ætli þær sér ekki að fara í sumarfrí. Við hvetjum Haukamenn, sem og aðra handboltaáhugamenn, að mæta á leikinn. Einnig hvetjum við Haukamenn til að mæta í rauðu og láta vel í sér heyra í pöllunum.