Stórveisla á Ásvöllum á Sumardaginn fyrsta

Handboltaunnendum er boðið til stórveislu á Ásvöllum á Sumardaginn fyrsta þegar Haukar og Fram mætast í oddaleik í undanúrslitum Íslandsmótsins.

Óhætt er að lofa spennandi leik í stórkostlegri umgjörð. Húsið opnar kl. 18:30 og er fólk hvatt til að mæta snemma í réttum lit!

Jónsi úr Svörtum fötum ætlar að hita upp mannskapinn af sinni velkunnu snilld, boðið verður upp á andlitsmálningu fyrir krakka, svipmyndir úr fyrri stórleikjum sýndar á risatjaldi og áhorfendur geta unnið til glæsilegra vinninga í leikhléum og hálfleik.

Nýkrýndir Íslandsmeistarar 4. fl. karla verða heiðraðir. Barnagæsla verður í boði fyrir yngri kynslóðina.

Allir á völlinn.

Áfram Haukar!!!!

Mynd: Haukafólk fjölmennti á fyrsta leik liðanna. Nú viljum við fleiri á völlinnstefan@haukar.is