Henning nýr landsliðsþjálfari

Henning Henningsson er nýr landsliðsþjálfari A-landsliðs kvenna og tekur hann við starfinu af Ágústi Björgvinssyni sem var sagt upp á dögunum.

Henning er okkur Haukamönnum vel kunnugur enda fyrrum fyrirliði mfl. kk. sem og þjálfari beggja meistaraflokka félagsins.

Fyrsta verkefni Hennings með A-landsliðið eru Smáþjóðaleikarnir á Kýpur í byrjun júní.

Heimasíðan óskar Henning velfarnaðar í nýja starfinu.

Mynd: Henning er nýr þjálfari A-landsliðs kvennaarnarm@haukar.is