Haukar unnu stórsigur á Fram í gærkvöldi og tryggðu sér um leið sæti í úrslitum N1-deildar karla. Haukar voru sterkari frá upphafi til enda og sigur þeirra aldrei í hættu. Meistararnir sýndu sannkallaða meistaratakta og verður spennandi að sjá þá kljást við frændur okkar í Val en þeir lögðu HK í oddaleik á Hliðarenda.
Fyrsti leikur úrslitanna er á mánudag á Ásvöllum kl. 19.45.
Hægt er að sjá fleiri myndir með því að smella á meira.
Myndir: stefan@haukar.is