Þrír frá Haukum í U-16 ára úrtaki KSÍ

HaukarUm helgina fara fram úrtaksæfingar hjá U-16 ára karlalandsliði Íslands. Freyr Sverrisson þjálfari liðsins hefur valið hópinn en Freyr þjálfar einnig yngri flokka hjá Haukum.

Í U-16 eiga Haukar þrjá fulltrúa en það eru þeir, Þórður Jón Jóhannesson, Haukur Björnsson og markvörðurinn Daníel Þór Ingason.

Æfingarnar fara fram í Kórnum um helgina. Um er að ræða 36 manna hóp sem valinn hefur verið.

Við óskum strákunum til hamingju með valið og óskum þeim góðs gengis á æfingunum og í framtíðinni.