Hanna í úrvalsliði umferða 10-18 í N1 deild kvenna

Hanna Guðrún StefánsdóttirHanna Guðrún Stefánsdóttir var valin í úrvalslið umferða 10-18 í N1 deild kvenna en tilkynnt var um valið í gær. Hanna er eini fulltrúi Hauka í liðinu en Valur og Fram eiga þrjá fulltrúa hvor og Stjarnan einn. Haukasíðan óskar Hönnu og öðrum útnefndum til hamingju með árangurinn.

Liðið er svo skipað:

Markvörður: Berglind Íris Hansdóttir – Valur

Línumaður: Anna Úrsúla Guðmundsdóttir – Valur

Vinstra Horn: Ásta Birna Gunnarsdóttir – Fram

Vinstri Skytta: Stella Sigurðardóttir – Fram

Hægra Horn: Hanna G. Stefánsdóttir – Haukar

Hægri Skytta: Alina Tamasan – Stjarnan

Miðjumaður: Karen Knútsdóttir – Fram

Þjálfari: Stefán Arnarson