Körfuboltabolir í sölu

Í kvöld á leik Hauka og Þórs fara í sölu bolir merktir Haukar Körfubolti. Um einar fimm tegundur af bolum verða til sölu og skarta þrír þeirra mynd af leikmönnum meistaraflokkanna.

Bolirnir munu hanga uppi á meðan leik stendur bæði uppi á palli og niðri í sjoppu og er þetta tilvalið í jólapakkann í ár.

Á myndinni má sjá Semaj og Örn í bolunum sem um ræðir.

Nú er bara að skella sér á leik Hauka og Þórs og fjárfesta í eitt stykki bol.