Sigur og tap í síðustu leikjum

HaukarMeistaraflokkur karla í fótbolta er að koma sér í gírinn fyrir komandi sumar og hafa spilað tvo æfingaleiki síðustu daga. Sigur og tap hafa litið dagsins ljós hjá þeim.

Í síðustu viku spiluðu strákarnir gegn Keflavík í Reykjaneshöllinni og þar sigruðu Keflavík nokkuð örugglega 5-2, en staðan var jöfn í hálfleik 1-1. Mikið vantaði í hópinn hjá Haukum í þeim leik, vegna meiðsla, veikinda sem og próflesturs.

Mörk Hauka gegn Keflavík skoruðu þeir Hilmar Geir Eiðsson og Ásgeir Þór Ingólfsson. 

Í gærkvöldi léku strákarnir síðan gegn 3.deildarfélaginu, KFG semsagt, Knattspyrnufélag Garðabæjar. Þar fóru okkar menn með sigur af hólmi, 4-2 þar sem Hilmar Rafn Emilsson og Ásgeir Þór Ingólfsson skoruðu eitt mark hvor og síðan skoraði Davíð Birgisson tvö mörk en hann hefur verið vel heitur í fyrstu æfingaleikjum sínum með Haukum en hann missti af leiknum gegn Keflavíkur vegna veikinda.

 Ekki verða fleiri æfingaleikir spilaðir fyrir áramót og því taka við æfingar hjá strákunum undir stjórn Andra Marteinssonar næstu daga og síðan stutt og léttgott jólafrí síðan verður alvaran tekinn upp á ný.