Stórleikur í handbolta, heimaleikur gegn Akureyri í N1 deildinni

Haukar

Meistaraflokkur karla í handknattleik þarf að taka á honum stóra sínum þegar það fær til sín topplið Akureyrar í heimsókn á Ásvelli í kvöld  kl. 18.30. Haukar sitja í 4. sæti deildarinnar með 12 stig en Akureyri er með 18 í því 1.

“Þetta er lykilleikur til að tryggja okkur í eitt af fjórum efstu sætunum og þar með þátttöku í deildarbikarnum sem leikinn er milli jóla og nýárs, eða 27. og 28. desember”, sagði Halldór Ingólfsson þjálfari Hauka.

 Halldór bætti við að stemmningin á síðasta leik hafi verið sérstaklega góð og hann hvetur alla Haukamenn til að fjölmenna og skemmta sér á pöllunum. Hann mun mæta fyrir leik og ræða við Hauka í horni ásamt því sem Óskar Ármanns, aðstoðarþjálfari, mun ræða við Hauka í horni í hálfleik og eftir leik.

VIP aðstaðan opnar kl. 17.30 grillið verður í gangi en það mæltist vel fyrir á seinasta leik. Allir Haukar í horni að mæta og taka með sér 1-2 gesti, koma svo

 


 

N1 deild karla staðan 14. desember 2010.

 

Nr.

Félag

Leik

U

J

T

Mörk

Nett

Stig

1.

Akureyri

10

9

0

1

303:262

41

18

2.

Fram

10

8

0

2

344:288

56

16

3.

HK

10

6

0

4

321:332

-11

12

4.

Haukar

10

6

0

4

259:255

4

12

5.

FH

10

6

0

4

294:277

17

12

6.

Valur

10

3

0

7

253:280

-27

6

7.

Afturelding

10

1

0

9

246:283

-37

2

8.

Selfoss

10

1

0

9

283:326

-43

2

Tekið af hsi.is