Fréttatilkynning
Byr hefur um margra ára skeið verið aðalstyrktaraðili handknattleiksdeildar Hauka. Samstarfið hefur verið mjög gott og hafa Haukar í handknattleik verið í fremstu röð í samvinnu við Byr. Byr er virkur þátttakandi í íslensku samfélagi og leggur áherslu á að styrkja góð og uppbyggileg verkefni sem stuðla að heilbrigðum lífsstíl allra aldurshópa.
Nú er komið að því að skrifa undir nýjan samning og þar sem þetta er viðburður sem bæði Byr og Haukar eru stoltir af þá verður skrifað undir hjá Haukum í horni fyrir stórleik Hauka og Akureyrar á morgun, fimmtudaginn 16. desember. Pennarnir verða dregnir fram kl. 18.00 en leikurinn hefst hálftíma síðar.
Haukar í horni munu vonandi fjölmenna til að fagna þessu og færa svo kraftinn inn á völlinn með strákunum svo þeir leggi topplið Akureyrar að velli.
Áfram Haukar!