Skrifað undir leikmannasamninga við glæsilegt íþróttafólk

Flottur hópur af íþróttafólkiÞað er sannkölluð gróska í starfinu hjá Haukum og upp úr grasrótinni spretta flottir íþróttamenn. Um áramótin var skrifað undir leikmannasamninga við hóp af ungum og efnilegum fótbolta – og handboltakrökkum. Það var létt yfir hópnum eins og sést á myndinni 🙂

Eftir að undirritaðir höfðu verið samningar við þennan glæsilega hóp var komið að því að endurnýjan samning við hinn mikla baráttujaxl og frábæra markmann mfl. karla í handbolta, Birki Ívar Guðmundsson. Nýr samingur við Birki er til 2012 og það er mikill fengur fyrir Hauka að hafa Birki áfram á milli stanganna enda einn allra besti handknattleiksmarkvörður landsins.

Birkir Ívar Guðmundsson og Valdimar Óskarsson, formaður hkd. Hauka

Aftari röð frá vinstri: Jón Björn Skúlason, formaður knattspyrnudeildar, Jónas Hafsteinsson, handbolti, Einar Ólafur Vilmundarson, handbolti, Adam Haukur Baumruk, handbolti, Ragnheiður Sveinsdóttir, handbolti, Brynjólfur Snær Brynjólfsson, handbolti, Egill Eiríksson, handbolti, Gunnlaugur Fannar Guðmundsson, fótbolti, Valdimar Óskarsson, formaður handknattleiksdeildar. Fremri röð frá vinstri: Ásta Pálmey Ottósdóttir, fótbolti, Auður Brynjólfsdóttir, fótbolti, Lára Rut Sigurðardóttir, fótbolti, Sonja Guðmundsdóttir, fótbolti, Karen Sif Jónsdóttir, fótbolti, Hrefna María Pálsdóttir, fótbolti