Fyrir skömmu tók Sigurjón Sigurðsson við starfi sölu –og markaðsstjóra Hauka.
Sigurjón er 44 ára og er uppalinn Haukamaður en hann lék um margra ára skeið handbolta með félaginu. Sigurjón hefur fengið margar viðurkenningar fyrir handknattleik en hann var meðal annars markakóngur efstu deildar árið 1987 og var í Íslandsmeistaraliði félagsins árið 2000.
Sigurjón er viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og hefur í gegnum árin tekið að sér markaðsverkefni fyrir félagið. Haukar bjóða Sigurjón velkominn til starfa og þakka um leið fráfarandi markaðs – og sölustjóra, Jón Inga Hákonarssyni, fyrir samstarfið.