Flottur sigur á Fjölni

HaukarMeistaraflokkur karla vann góðan sigur á Fjölni í gærkvöldi 91-75 í Iceland Express-deildinni. Eftir sigurinn eru Haukar enn í 5.-6. sæti ásamt Stjörnunni.

Gestirnir byrjuðu betur en Haukarnir tóku fljótlega völdin á vellinum og unnu sannfærandi sigur.

Semaj Inge var með 30 stig, Gerald Robinson með 22 stig og Haukur Óskarsson 21 stig.

Næsti leikur er á sunnudag gegn Grindavík í undanúrslitum Powerade-bikarsins.

Heimasíðan hvetur alla til að mæta á Ásvelli og tryggja strákunum farseðil í Höllina.

Umfjöllun um leikinn á Karfan.is

Myndasafn úr leiknum á Karfan.is

Tölfræði leiks

Staðan í Iceland Express-deildinni