Kæru foreldrar/forráðamenn
Nú er komið að endurgreiðslu fyrir handboltann. Það sem þið foreldrar þurfið að gera er að senda tölvupóst á gudbjorg@haukar.is með eftirfarandi upplýsingum:
1. Nafni iðkanda
2. Kennitölu iðkanda
3. Nafni greiðanda
4. Kennitölu greiðanda
5. Reikningsnúmeri og kennitölu greiðanda
Millifært er á þá sem hafa greitt gjaldið nú þegar (munið að senda reikningsnúmerið með).
Þeir sem hafa skipt gjaldinu óska eftir að upphæðinni verði breytt þ.e. að niðurgreiðsluupphæðin verði felld niður af heildarupphæðinni.
Þeir sem ekki hafa greitt æfingagjaldið geta óskað eftir að niðurgreiðsluupphæðin verði tekin af heildarupphæð gjaldsins áður en þeir borga.
Þær fjölskyldur sem eru með iðkendur í fleiri en einni grein fá öll sín mál uppgerð. Þá þarf að taka fram í hvaða grein viðkomandi er ásamt ofantöldum upplýsingum.