Rio Tinto Alcan og Haukar búnir að skrifa undir nýjan samning

Nú á dögunum skrifuðu Rio Tinto Alcan og Knattspyrnufélagið Haukar undir nýjan samstarfssamning. Samvinna Rio Tinto Alcan og Hauka hefur lengi verið mjög góð og með þessum nýja samningi er samstarfið aukið enn frekar og tekur nú til allra boltadeilda, bæði barna – og unglingastarfs ásamt meistaraflokkum. 

Myndin hér að neðan var tekin þegar nýr samningur var undirritaður.

Mynd frá undirskrift við Rio Tinto Alcan