Nýverið skrifaði ungur og efnilegur leikmaður, Árni Steinn Steinþórsson, undir samning við handknattleiksdeild Hauka. Árni Steinn, sem er uppalinn hjá Selfossi, er örvhentur og spilar í hægra horni. Haukar bjóða Árna velkominn til félagsins og vona að hann eigi eftir að komast fljótt í leikæfingu en Árni sleit krossbönd í nóvember á síðasta ári.
Haukaliðið hefur orðið fyrir blóðtöku þegar kemur að stöðu hægra hornarmanns en Einar Örn Jónsson hefur lagt skóna á hilluna og Guðmundur Árni Ólafsson hefur skrifað undir samning við danska liðið Bjerringbro-Silkiborg og því mjög jákvætt að Árni Steinn sé genginn til liðs við Hauka.
Áfram Haukar!