Elam Hope gengur í raðir Hauka

Haukar hafa styrkt sig enn frekar fyrir komandi átök í Iceland Express deild kvenna en Elam Hope, bandaríska stúlka, mun spila með liðinu í vetur. 

Hope kemur frá hinum sögufræga háskóla Indiana State og er yfir 180 cm á hæð. Hún mun því að mestu leiti leika sem miðherji en hún er einnig ágætis skytta og vonandi mun hún falla vel að leik liðsins.

Hope var byrjunarliðsmaður þrjú af fjórum árum sínum í háskóla og var að skora um 10 stig í leik og taka 5 fráköst.