Actavis og Körfuknattleiksdeild Hauka endurnýja samning
Fyrir leik Hauka og Snæfells í m.fl. karla var endurnýjaður samningur milli Actavís og Körfuknattleiksdeildar Hauka. Actavís hefur undanfarin 7 ár verið aðalstyrktaraðili deildarinnar. Í kjölfar góðs árangurs Hauka á síðasta ári ákvað Actavís að auka enn stuðning sinn við það uppbyggingar starf sem unnið er innan Körfuknattleiksdeildar Hauka en á síðasta keppnistímabili varð um 20% fjölgun ungra iðkennda hjá deildinni. Þá tókst hið árlega Actavísmót mjög vel í byrjun ársins, en þátttakendum á því móti hefur fjölgað mjög undanfarin ár en um 700 krakkar víðsvegar af landinu sóttu mótið í byrjun ársins.
Í samningnum sem skrifað var undir í dag hefur Körfuknattleiksdeild Hauka skuldbundið sig til að vinna gegn notkun munntóbaks hjá leikmönnum, þjálfurum og iðkenndum deildarinnar sem og að fræða iðkenndur körfuknattleiks um skaðsemi munntóbaks. Haukar eru fyrsta félagið hér á landi sem skrifar undir slíka skuldbindingu í samningum við Actavís.
Benedikt Sigurðsson sviðsstjóri samskiptasviðs hjá Actavís og Samúel Guðmundsson formaður Körfuknattleiksdeildar Hauka skrifuðu undir samninginn. Við það tækifæri komm.a. fram að samningurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir körfuna í Haukum og hornsteinn í uppbyggingarstarfi deildarinnar.
Á þessu ári hefur náðst góður árangur hjá mörgum flokkum deildarinnar og má þar nefna Íslandsmeistaratitil sem 9.flokkur karla vann s.l. vor með eftirminnilegum hætti og bikarmeistaratitil hjá unglingaflokki karla. Margir aðrir flokkar deildarinnar voru í baráttunni um Íslandsmeistaratitla. Þá hafa Haukar ekki átt í langan tíma fleiri leikmenn í yngri landsliðum Íslands en 10 leikmenn Hauka voru valdir í landsliðsverkefni á síðasta keppnistímabili.
Þá vann meistaraflokkur kvenna Lengjubikarinn nú nýverið og voru við undirritun samningsins við Actavís yngstu leikmenn m.fl. kvenna viðstaddir en þeir eru nú að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokki. Þessir leikmenn hafa unnið fjölda titla upp yngri flokka starf Hauka.