Í kvöld fer fram stórleikur í handboltanum þegar Valsarar koma í heimsókn til nýkrýndra bikarmeistara í Haukum í Schenkerhöllina á Ásvöllum. Okkar drengir eru að sjálfsögðu staðráðnir í að fylgja eftir góðum árangri í bikarkeppninni með góðum árangri í deildinni þar sem okkar drengir sitja nú á toppnum en Valur er sem stendur í 6.sæti deildarinnar. Engu að síður má þó búast við jöfnum leik þar sem Valur er með gott lið og deildin er mjög jöfn.
Leikurinn hefst kl.19:30.