Stelpurnar í 5.flokki og 6.flokki kvenna í fótbolta fóru um sl. helgi á Goðamót á Akureyri. Hópurinn skemmti sér afar vel á mótinu og var ferðin vel heppnuð í alla staði. Ekki skemmdi fyrir að stelpurnar stóðu sig líka vel innan vallar og voru félaginu til sóma. A-lið 5.flokks kvenna náði þeim glæsilega árangri að vinna mótið og er því Goðamótsmeistari árið 2012, óskum við stelpunum og þjálfurum þeirra þeim Kristjáni Arnari Ingasyni og Kristjáni Sveinssyni til hamingju með árangurinn. Skemmst er þess að minnast að þessi sami hópur varð Íslandsmeistari í futsal fyrir nokkrum vikum. Framtíðin er augljóslega björt í fótboltanum hjá Haukum!