Körfuboltagoðsögnin Pálmar Sigurðsson er í skemmtilegu spjalli á heimasíðu KKÍ. A-landslið karla hefur leik á þriðjudag gegn stórliði Serbíu og í tilefni þess var Pálmar fengin til að rifja upp landsliðsárin sín og segir m.a. frá mögnuðu körfunni sem hann skoraði gegn Noregi.
Hægt er að sjá myndbandið með því að smella hér.
Ísland mætir Serbíu á þriðjudagskvöld í Laugardalshöll í fyrsta leik fyrir undankeppni EM í Slóveníu á næsta ári.
Hægt er að nálgast miða á Miði.is
Áfram Haukar og Ísland!!!