Tap gegn Fjölni

HaukarHaukastelpur biðu lægri hlut fyrir Fjölni á föstudagskvöldið sl. og urðu lokatölur 2-0 Fjölni í vil en leikurinn fór fram í Grafarvogi. Leikurinn var jafn allan leikinn en hvorugu liðinu gekk mikið að skapa sér færi, þau fáu sem sköpuðust nýttu heimastúlkur hins vegar betur og skoruðu tvö mörk með sköllum úr teignum. Haukastelpur hafa nú tapað þremur leikjum í röð en sitja eftir sem áður í 6. sæti þessarar mjög svo jöfnu deildar. Síðasti leikur stelpnanna í sumar fer fram á Schenkervellinum að Ásvöllum á föstudaginn næst komandi kl.20:00.