Haukar leika í Ólafsvík

HaukarHeil umferð fer fram í 1.deild karla á morgun og Haukanna bíður heldur betur verðugt verkefni er þeir halda til Ólafsvíkur og mæta þar heimamönnum í Víkingi. Haukaliðinu hefur ekki gengið sem skyldi í undanförnum leikjum en eru þó enn með í toppbaráttudeildarinnar af fullum krafti ef þeir næla í þrjú stig í Ólafsvík. Heimamenn eru í öðru sæti deildarinnar, fjórum stigum á undan Haukum en þeir hafa tapað tveimur leikjum í röð og mega ekki við því að tapa þeim þriðja ef þeir ætla að halda öðru sætinu.

Leikurinn hefst kl.18:30 á Ólafsvík og er um að gera fyrir Haukafólk að taka stuttan 2 klst bíltúr á Ólafsvík og skella sér á leikinn!