Jóhanna Björk Sveinsdóttir hefur samið við félagið til eins árs og mun spila með Haukaliðinu í Dominos-deild kvenna á komandi leiktíð.
Jóhanna er 23 ára framherji, 180 cm á hæð og uppalin í Hamri frá Hveragerði þar sem hún spilaði upp yngri flokkana. 2009 færði hún sig um set og lék með KR í tvö tímabil en á síðustu leiktíð var hún með liði Breiðabliks í 1. deildinni.
Jóhanna á að baki 2 landsleiki og 18 landsleiki með yngri landsliðum Íslands.
Gunnhildur Gunnars, Lovísa Hennings og Dagbjört Samúels sömdu einnig við félagið og sjást hér á myndinni fyrir neðan ásamt Jóhönnu.