Lokahóf knattspyrnudeildar Hauka verður haldið í veislusal félagsins laugardaginn 22. september nk. og opnar húsið kl. 20:00. Tilkynnt verður um val á leikmönnum ársins og efnilegustu leikmönnum í meistaraflokki karla og kvenna auk þess sem markahæstu leikmenn verða verðlaunaðir.
Boðið verður upp á flottan kvöldverð og munu þeir Freyr Sverrisson og Hlynur Áskelsson, þjálfarar hjá Haukum, sjá um veislustjórn af sinni alkunnu snilld.
Miðaverð er aðeins 2.500 kr. og 2.250 kr. fyrir félaga Haukum í horni. Hægt verður að kaupa miða á Ásvöllum.
Nánari upplýsingar verða kynntar á næstu dögum en um að gera að taka daginn frá enda skemmtilegt partý og uppskeruhátíð fyrir alla stuðningsmenn og aðra aðstandendur Hauka.