Á morgun, laugardag, taka Haukastúlkur á móti Aftureldingu í Olísdeild kvenna. Leikurinn hefst kl. 16:00.
Þetta er leikur í 7. umferð en staða liðanna eftir fyrstu 6 umferðirnar er þannig að Haukar eru með 4 stig, hafa unnið 2 leiki en tapað 4. Afturelding hefur tapað öllum sínum 6 fyrstu leikjum og má því segja að þessi leikur sé algjör skyldusigur fyrir Hauka. En það má þó ekki vanmeta lið Aftureldingar sem hefur á köflum leikið fínan handbolta þrátt fyrir að hafa ekki enn landað sigri.
Allir að mæta í Schenkerhöllina á morgun.
Áfram Haukar!