Haukar fá Snæfell í 16 liða úrslitum

Dregið var í 16. liða úrslit í Poweradebikarkeppni karla og kvenna í dag og ljóst að það verða flottir leikir fram undan. 9 af 12 liðum í Úrvalsdeild komust áfram í 16 liða úrslit og alls verða fjórir úrvalsdeildar slagir í umferðinni.

Haukar koma til með mæta Snæfell í Schenker höllinni en Haukar unnu einmitt flottan sigur gegn þeim í síðustu umferð Íslandsmótsins.

16-liða úrslit karla:
Skallagrímur-Þór Þorlákshöfn
Tindastóll-Reynir Sandgerði
Njarðvík-Stjarnan
ÍR-Þór Akureyri
Fjölnir-FSu
Haukar-Snæfell
ÍG-Keflavík b
Keflavík-Grindavík

Aðeins 14 lið voru skráð til leiks í bikarkeppni kvenna og þurfa því tvö lið að sitja hjá. Varð það hlutskipti Hauka að sitja hjá og fer liðið beint í 8. liða úrslit.

16-liða úrslit kvenna:
Þór Akureyri – KR
Tindastóll-Snæfell
Valur-Hamar
Njarðvík-FSu
Stjarnan-Grindavík
Breiðablik-Fjölnir
– Liðin sem sitja hjá eru Haukar og Keflavík