Í kvöld, fimmtudag kl. 19:30, taka Haukar á móti HK í Olísdeild karla. Haukar eru sem stendur í efsta sæti deildarinnar ásamt ÍBV og ÍR en öll liðin eru með 8 stig að loknum 6 umferðum, búin að vinna 4 leiki en tapa 2. HK hefur ekki byrjað vel þetta árið og er sem stendur í neðsta sæti deildarinnar með 1 stig.
HK menn eru þó þekktir fyrir baráttu og seiglu og munu þeir vafalítið berjast af hörku fyrir þessum tveimur stigum sem í boði eru á morgun. Haukapiltar mega því alls ekki vanmeta lið HK en á eðlilegum degi eiga Haukar að vinna þennan leik, það er ljóst.
Allir að mæta og hvetja Hauka til sigurs.
Áfram Haukar!