Um helgina fór fram annað mót vetrarins hjá 5. flokki kvenna (eldra ár) og leikið var í Mosfellsbæ. Í þetta sinn vorum við með tvö lið Haukar 1 og 2. Stelpurnar í Haukum 1 spiluðu í A riðli og unnu alla leiki sína eins og á síðasta móti. Þær þurftu að hafa verulega fyrir hlutunum í síðasta leiknum á móti ÍR en í hálfleik var staðan 4 – 6 ÍR í vil . Með mikilli baráttu tókst þeim að landa sigri og lokatölur urðu 13 – 11.
Úrslit leikjanna hjá liði 1:
Haukar – Valur 11 – 7
Haukar – ÍBV 19 – 5
Haukar – Fram 17 – 7
Haukar – ÍR 13 – 11
Alls skoruðu þær 60 mörk og fengu 30 á sig.
Markvarslan var góð en Katrín var með 56% markvörslu og Eva Lilja 40% en hún lék sáralítið með liði 1 þar sem hún stóð vaktina 100% með liði 2.
Lið 2 stóð sig líka mjög vel og spilaði til úrslita í riðli 3B þar sem þær lögðu Fram í hörkuleik 10 – 8 eftir að hafa verið 4 – 8 undir. Gerð var athugasemd við liðið þar sem 3 leikmenn þessi voru varamenn í liði 1 og voru því allir leikir okkar dæmdir tapaðir, því miður. En fyrir mótið var vitað að þetta gæti gerst og ekkert við því að segja. í liði 2 fengu leikmenn að spreyta sig sem spiluð lítið sem ekkert í síðasta móti.
Úrslit leikjanna hjá liði 2:
Haukar 2 – KA/Þór 2 9 – 10
Haukar 2 – Afturelding 2 14 – 7
Haukar 2 – Fram 2 9 – 7
Þær skoruðu 32 mörk og fengu á sig 24.
Langmarkahæst var Hólmfríður Rakel sem skoraði 23 mörk.
Markvarslan var líka fín en Eva Lilja var með 35% markvörslu og átti stórleik í seinni hálfleik í „úrslitaleiknum“ á móti Fram en tölfræði vantar úr þeim leik.
„Úrslitaleikur“ á móti Fram 2.
Haukar 2 – Fram 2 10 – 8.
Þetta eru flottar stelpur sem eru sannarlega til fyrirmyndar bæði innan sem utan vallar og við óskum þeim til hamingju með þennan árangur.
Áfram Haukar!