Bikarleikir í Schenkerhöllinni í kvöld

Kolbrún Gígja og félagar í mfl. kvenna taka á móti Selfossi í bikarnum í kvöldÍ dag, þriðjudag kl. 18:30, taka stelpurnar í mfl. kvenna á móti Selfossi í Coca Cola bikarnum. Þessi lið eru á svipuðum stað í deildinni en Haukar eru í 8. sæti með 6 stig en Selfoss í því 9. með 4. Liðin áttust við fyrir stuttu á Selfossi þar sem Haukastúlku sigruðu 16 – 20. Búast má við hörkuleik og mjög mikilvægt að fá góða hvatningu úr stúkunni.

Á eftir leiknum hjá stelpunum er annar bikarleikur en þá spila Haukar 2 (kk) á móti Fylki. Haukar 2 er skipað handboltamönnum sem hafa fyrir löngu síðan eða nýverið lagt keppniskóna í efstu deild á hilluna og verður örugglega gaman að sjá þá takast á við ungt lið Fylkis. 

Mætum öll og hvetjum Hauka til sigurs.

Áfram Haukar!