Það verður nóg um að vera á Ásvöllum á föstudaginn en bæði lið Hauka í Domino‘s deildunum leika leiki sína þann dag. Haukastúlkur fá Hamar í heimsókn og Skallagrímur mæta drengjunum. Bæði lið eru í mikilli baráttu við liðin á toppnum og sigur í þessum leikjum nauðsynlegur til að halda þeirri baráttu áfram.
Skallagrímur situr í 10. sæti deildarinnar með tvo sigra á meðan Haukar eru í því 6. með fimm sigra. Hjá stúlkunum eru Haukar í 3. sæti með átta sigra, og höfðu fram að síðasta leik unnið sex leiki í röð, en Hamar er í 4. sæti með sex sigra.
Á milli leikja verður Gunni mættur með grillið og að þessu sinni verður enginn annar en Steingrímur Bjarnason (a.k.a. Steinki á Sbarro) honum til halds og traust.
Leikur Hauk og Hamars í Domino‘s deild kvenna hefst kl. 18:00 en leikur Hauka og Skallagríms í Domin‘s deild karla hefst kl. 20:00