Fyrsti leikur á árinu 2014 hjá stúlkunum í mfl. kvenna í Dominósdeildinni verður háður á Ásvöllum á sunnudaginn kl. 19:15.
Um toppleik er að ræða því Keflavíkurstúlkur mæta á Ásvelli. Keflvíkingar hafa verið á toppnum mestan hluta tímabilsins en misstu toppsætið rétt fyrir jólafrí í hendurnar á Snæfellsstúlkum. Haukarnir voru að spila ágætlega fyrir jólafríið og unnu síðast Hamar þrátt fyrir að nokkra lykilmenn hafi vantað í þann leik.
Haukarnir geta náð Keflvíkingum með sigri og því er þessi leikur mjög mikilvægur fyrir okkar stúlkur. Nú er bara að spila vel saman sem lið og færa sig ofar í töflunni.